Ég fékk
spurningu í kvöld afhverju ég notaði svo mikið af ensku
slettum í málfari mínu?
Satt að segja
þá varð ég eiginlega orðlaus og átti erfitt með að svara þessu og
það gerist ekki oft skal eg segja ykkur. Ég fór síðan að spá í
þetta og greinilega geri ég þetta ómeðvitað en stundum meðvitað.

En hvað um það
þá komst ég að því (skrítið) að það sem skiptir mig
máli er að ég er vel máli farin á "Íslenskri tungu" þegar svo ber
undir og get alveg verið málefnaleg og hafa frá mér farið snilldar
skrif á góðri og Dömulegri Íslensku 
Þannig að ég
komst að þeirri niðurstöðu að ég mun halda áfram að tala eins og ég
geri dags daglega með slettum eður ei. Take it or leave
it.....



Annars er það
að frétta að ég og Kristín Richardsdóttir erum að stofna
hljómsveit. Fyrsti smellur okkar hefur litið dagsins ljós. Við
prufukeyrðum lagið í Vestmannaeyjum síðustu helgi og voru viðtökur
hreint út sagt frábærar. Nokkrir hafa sett sig í samband við okkur
og vilja ólmir gefa söng okkar út á hljómplötu.
Okkur vantar
hinsvegar nafn á bandið auk trommara, gítarleikara, bassaleikara og
píanóleikara.....skilyrði er að þeir séu allir einhleypir á milli
35-45 ára ekki degi eldri og alls ekki degi yngri.
Það fyrsta er
að finna nafn á hljómsveitina og við setjum það í hendurnar á ykkur
lesendur góðir að ljá okkur lið.
Til margs er að
vinna því að sá sem á hugmyndina að besta nafninu fær fyrstur/fyrst
eiginhandaráritun frá okkur stöllum 
Ég mun leyfa
ykkur að fylgjast með framvindu mála næstu daga og
vikur.
Eigið góða
daga.
Anna