Jæja gott fólk 
Það koma að því !! Nýr og brennheitur
diskur frá Rock Virgins er komin í framleiðslu 
Við fórum í stúdíó á föstudaginn var og áttum
frábæra klukkutíma með Magga Kjartans tónlistarfrömuð með meiru.
Var tekin upp Greatest Hits diskur sem mun fara í póst
seinnipart vikunnar.
Þeir sem þegar hafa fengið að heyra hann eru
allir sammála um að þetta er það heitasta sem komið hefur í fleiri
áratugi 
Við stöllur eru að vonum mjög stoltar og glaðar
af afrakstrinum 


Endilega hafið samband ef áhugi er á að eignast
þennan magnaða disk.
Næsti stórviðburður er New York borg en þangað
eru bókaðir miðar þann 9.ágúst og nú þegar hafa verið bókuð nokkur
gigg 
Þannig að heimsfrægðin er nánast komin inná
þröskuld hjá okkur 
Þetta eru búnir að vera gleðidagar fyrir utan það
að frumburðurinn minn er að flytja að heiman :

Ég sem hélt að hann ætlaði alltaf að vera heima
og hugsa um móður sína 

En þetta er víst gangur lífisins þó að mér
finnist þessi gangur bara ömurlegur....verð að segja
það.
Mér finnst að börnin eigi aldrei að flytja ! Þau
eru búin að vera partur af mínu daglega lífi öll þessi ár og ég
hreinlega skil ekki afhverju það þurfi eitthvað að breyta því


En ég ræð víst engu um það
Ég verð að
taka þessu eins og hverju öðru hundsbiti
Ógurlegur væll er þetta
Ég mun taka mig
taki 
Þangað til næst
Goodbye
AnaBanana