AnaBanana

Önnusíða

16.10.2007 13:08:39 / anna1305

Minna er betra en ekki neitt !

Þessi frasi kom upp í sumarbústaðnum um helgina……var að reyna að kryfja þetta…fann svosem ekkert útúr því 8|

En ef ég mundi hugsa að minna er betra en ekki neitt….þá væri ég ekki í svo góðum málum.

Ef ég mundi fara á date með illa lyktandi Hobbita….ætti ég að vera ánægð með það því að hann væri betri en ekki neitt? :cry:

 

Almáttugur er ekki að finna útúr þessu núna. Ég er enn að súpa seyðið af sterka súpinu sem ég fékk mér í bústaðnum um helgina. :^):^):^)

 

Þetta var alveg snilldarferð…..snjósleðaferðin ( vélsleðinn) stóð þó uppúr hjá mér….var alveg að fíla mig.

 

Reyndar held ég að ég sé að verða eins og snillingarnir sem lásu yfir sig í gamla daga….er algjörlega steikt…..er farin að hugsa um debet og kredit og tala um debet og kredit 24/7 8|

 

Ég held að ég þurfi að skipta um starfsvettvang……fara í skúringar eða í umönnurstarf á einhverju elliheimilinu…..annars skilst mér að samkeppninn þar sé mjög hörð.  Ég held að þær Tælensku hafi yfirhöndina gegn þessum Pólsku í lágum launum…..hef örugglega ekkert í þær.

 

En þar sem ég ætlaði aðallega að segja í þessu bloggi mínu er að myndasíðan mín er komin í lag og ég er að vinna í því að koma inn öllum myndunum. 8)

 

Njótið

Anna ennþá þunna.

Stæna skrifaði
Hvurslags eiginlega speki er þetta nú?!!! Minna betra en ekki neitt!!! Þetta hljómar eins og manneskja sem er tilbúin að sætta sig við hlutina, eins og það er betra að fá minni laun en engin, betra að fá minna að borða en ekkert, betra að hafa lítið typpi en ekkert...sko ég er ekki með neitt typpi og ég er best. Myndi ekki sætta mig við neitt meira þar. Nei þetta hljómar svo minnihlutalegt að minna sé betra en ekkert, út með þennan frasa og inn með eitthvað uppbyggilegra, eins og Betri er enginn karlmaður því þeir eru allir eins:) þetta var djúpt, maður! Og Anna mín, ég er ekki alveg að sjá þig með illa lyktandi hobbita, það væri kannski í lagi að það væri hobbiti en ekki illa lyktandi og helst bara að ganga fyrir rafmagni. hahahahaaha
Kristjana skrifaði
Ef einhver á engan mat og fær smá þá er minna betra en ekki neitt...
Öll að koma till skrifaði
Jú það er rétt hjá þér Kristjana...auðvitað er þetta gott fyrir þá sem eiga ekkert að borða. Kristín !!! Þetta var engin speki!! Þessu var bara kastað si svona fram ! Þú þarft alltaf að vera svo æst....Take a chill pill my dearest
Stæna skrifaði
Jájá, það má alltaf finna undantekninguna sem sannar regluna, allt í lagi þá, what ever.... En hvað er þetta elsku Anna mín..... hver er æst núna?!!! Bara alveg róleg:) Passaðu blóðþrýstinginn!!!
Sperrinsy skrifaði
Ja hérna!Er alveg orðlaus.Hvað gengur ykkur til?- Einn ráðalaus.
Alveg orðin hress skrifaði
Elsku Sperrinsky það er von að þú spyrjir !! Kafaðu djúpt í sálartetrið og þá finnur þú svarið.
Sperrinsky skrifaði
Heldurðu? Fer varla að róta í öllu því dóti!Þvílíkt gúllas sem það er, líkt og þú veist.Glaður að hafa vakið viðbrögð.Þið eruð bara flottar, á ykkar hátt.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 18964
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Klukkan
Myndasíðan mín :)