Helló
Jæja ég var beðin
um að koma sögu á framfæri frá óþekktum manni
sem ekki vill láta nafn sitt getið ( kannski ekki
skrítið)
Hér kemur
hún:
Einu sinni var lítill útlenskur drengur sem átti
þá einu ósk að búa á Íslandi.
Það var ekki fyrr en hann var komin á
fimmtugsaldurinn þá sló hann til og ákvað að láta þessa ósk rætast.
Einn
góðan veðurdag þá pakkaði hann niður í Adidas töskuna sína
sem mamma hans hafði gefið honum í fermingargjöf og kvaddi
alla með bros á vör.
Stefnan var sett niður á bryggju og skundað um
borð í dallinn Norrænu. Hann silgdi um svalan sæinn
þar til að dallurinn bar hann heim til
Seyðisfjarðar. 
Þvílík gleði sem hann fann í
hjarta sínu þegar hann tók sín fyrstu skref á Íslandi
Lífið blasti við óþekkta manninum
hann fékk vinnu, keypti bíl og jafnvel hús. Allt gekk honum í
haginn
En það var samt eitt sem hann vantaði til að gera
tilveruna fullkomna.
Kona
Margar tilraunir hafa verið gerðar bæði online og
offline en af einhverjum ástæðum virtist það ekki ganga upp
það eina sem
hann hefur fengið útúr því brölti er einmanna þýsk kelling sem vill
búa hjá honum.
En nei honum líst ekki á það.
Íslenskt Já takk.
Hin óþekkti er margsinnis búin að
skipta um símanúmer og heimilisfang en alltaf þefar sú þýska hann
uppi.
Eitt sinn þá kom að máli við hann Reykvískt par
sem höfðu áhuga á að leigja sér húsnæði á þeim stað sem óþekkti
maðurinn bjó.
Laust að honum hugmynd sem hann
bar undir þau og var henni vægast ekki tekið vel……var í nokkra
vikur að jafna sig líkamlega.
Hugmyndin var að slá margar flugur
í einu höggi…eiginkonan mundi flytja til hans og þjóna honum til
borðs og sængur og eiginmaðurinn mundi flytja í kjallaraholu ásamt
þessari þýsku og allir mundu lifa í sátt og samlyndi.
Hin óþekkti maður upplifði basl og
kreppu eins og við öll hin höfum gert. Hann leitaði allra leiða til
að skapa sér aukapening á sem auðveldasta hátt.
Afraksturinn af þeirri hugsanavinnu var ekki
glæsileg.
Hann ákvað að gera út Pólska
verkamenn og selja einmanna miðaldra konum á Íslandi unaðsnótt með
Polski Produtzki. 
Ég mun ekki fara útí það á þessu bloggi hvernig
þau viðskipti fóru.
Allavega ákvað ég að segja ykkur
hverskonar konu hann vill og kannski verður hann
heppinn….hver veit….eða ekki.
Hún á að kunna að elda góðan mat,
vera vel þrifin, má ekki vinna úti, vill stunda kynlíf bara ef
honum langar og fá auka nudd og gælur á
hátíðsdögum.
Hér hafið þið það……..saga úr
sveitinni. 
Svona er Ísland í dag (stolin frasi)
Sjáumst
Anna
p.s.
Ef það eru einhverja konur sem
lesa þessa sögu og hafa áhuga á sambandi við útlenskan
Íslending þá endilega skrifið nafn og símanúmer og ég mun koma því
áleiðis til óþekkta mannsins.